Hæ. Á einhver hópmynd sem var tekin af okkur í sumar í bryllupinu?
Mér var nefnilega að detta í hug að við myndum senda Nínu jólakort og láta myndina fylgja með.
Veit ekki hvort ég eigi mynd - ekki digital (þar sem ég er svo mikill slugsi að vera ekki buin að framkalla filmu)

3 Comments:
Arna eða Solla ættu að eiga eina slíka ekki satt stelpur minar:)
Já held að það séu 1 eða 2 á filmunni hjá mér... þarf bara að kanna það ;)
Cool. Ég ætla líka að kanna filmuna mína.
Það voru teknar svo margar - hlýtur að vera til ein góð.
Ég var að spá, að ef þið viljið að við sendum allar saman, þá skal ég taka það að mér. Það á reyndar að senda jólakort til utan evrópu fyrir 8. des en það verður bara skemmtilegt fyrir hana að fá þetta milli jóla og nýárs :)
Ég var að spá - vill einhver ykkar senda henni handskrifaða línu og senda með jólakortinu - gætum sett það allt í eitt mail.
Ef þið ætlið að gera það - að koma því til mín fyrir 13. eða 14. des - hmm... bara svona uppástunga.
Skrifa ummæli
<< Home